13 október 2005

Jæja betri morgun í dag

Þó mig hafi mest langað til að sofa einum og hálfum klukkutíma lengur og sleppa leikfimi. Þá dreif ég mig á lappir og í leikfimi. Ekki frá því að það hafi mildað strengina aðeins.

Á morgun er svo foreldrakaffi hjá Heiðmari Mána sem var nú kátari í morgun og hékk ekki í mér og grét, enda var hann fyrstur að mæta í morgun og fékk alla athyglina fannst það ekki ónýtt hehe.
Eftir vinnu á morgun er svo keila, svo versla og svo fara heim að undirbúa barnaafmæli. Föstudagurinn eftir það fer svo í að undirbúa hitt afmælið. hehehe ;o)

Jæja farin að vinna man ekki eftir fleiru til að segja í augnablikinu.

Hafrún Ásta strengjabrúða

2 ummæli:

Sonja sagði...

Hvað er foreldrakaffi? Tengist það eitthvað leikskólanum ?

Hafrún Ásta sagði...

já við förum og borðum morgunmat með barninu það er búið hjá Hafsteini en er hjá Heiðmari Mána núna svo bara förum við og þau halda áfram með daginn.