26 nóvember 2006

Flutt

jæja gott fólk ég nenni þessu ekki lengur og er flutt hingað http://nurfah.wordpress.com
bloggerinn er svo erfiður við mig og hefur ekki með þessu beta drasli leyft mér að blogga.

Hafrún nýflutta.

20 nóvember 2006

Fyndið

Ég fékk þessa mynd senda í tölvupósti ásamt fleirum.


Þetta er svakalega fyndin mynd... Sé Nölu alveg fyrir mér í aksjón...
Hafrún Ásta sem hefur lítið að segja ennþá...

19 nóvember 2006

Snjór

Við fórum í bíó í gær í 9 bíó sem var búið klukkan 23. Sáum Mýrina og hún var bara fín. Sáum sýnishorn á undan og hver veit nema Köld slóð geti verið fín mynd. og mig langar að sjá Börn kanski eru íslenskar myndir að koma til eitthvað. Allavega jújú við fórum fyrst í Regnbogann og þegar loks kom að okkur í röðinni var uppselt á allar myndir og fullt af fólki á eftir okkur í röðinni. Krappý bíó svo við rúntuðum í Háskólabíó í stóra salinn þar sem nóg var af sætum ;o) En aftur að titlinum við komum út og það er ekki alveg eins kalt og áður en við fórum inn. Jú jú við förum heim og ég lýt út um gluggan þegar barnapían fer og sé að það er komið svona skaf svo þegar við förum í háttinn er komið svona hvítt hér og þar. En í morgun voru skaflar út um allt og fyrir bílastæðunum.

Hafsteinn var ekki lengi að dressa sig upp og halda út í sjóinn og reyna að troða niður leið fyrir bílinn því það var verið að ræða að fara í bíó með gengið á Sveitasælu eða eitthvað álíka. Allavega vildi hann greiða leið bílsins svo það klikki sko ekki.

Hafrún Ásta snjóuð inni.

10 nóvember 2006

Svo sem ekki margt að frétta.

En við fórum á haustfagnað í vinnunni í kvöld og Magni og vinir stóðu sig vel voru þrír órafmagnaðir og reittu af sér brandarana. Sungu óskalög úr salnum og mitt var Nothing Else Matters og tók Magni það af mikilli snilld og svo spurði vinur hans hvort hann hefði beðið um þetta sjálfur enda hans uppáhalds band. Allavega skemmtum okkur mjög vel. Búið að vera brjálað að gera í vinnunni vorum að opna nýja Krónubúð í Mosfellsbæ og ég fullyrði að hún sé með þeim flottari og þá sérstaklega í lágvöruverslun.

Hef svo sem ekki mikið að segja svo ég held ég hætti núna áður en ég fer að bulla í svefngalsanum hérna og skríði upp í.

Hlakka svo til að hitta hana Ástu Lovísu mína um helgina. Ásta þú ert hetja og þessi viðtöl lýsa svo þinni innri manneskju.

Hafrún Ásta

08 nóvember 2006

hvað finnst ykkur?


myndir
mynd 1
mynd 2

mynd 3


hvað finnst ykkur hinum?

hver er líkust mér?

04 nóvember 2006

Spurt og svarað???

Hendi hér inn nokkrar spurningum, nappaði hugmyndinni frá henni Ernu minni, og vonandi nennið þið svara þeim þær eru ekkert svaka erfiðar.


1. Hvað heitir þú fullu nafni?
2. Aldur:
3.Í hvaða stjörnumerki ertu?
4. Hvað hefur þú þekkt mig lengi?
5. Uppáhalds bíómynd:
6. Uppáhalds lag:
7. Uppáhaldshljómsveit:
8. Segðu mér eitthvað skrýtið um þig?
9. Tattoo eða göt:
10. Þekkjumst við persónulega?
11. Hver er tilgangurinn með lífinu?
12. Myndirðu þegja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Hver er minn helsti kostur?
15. Hver er minn helsti galli?
16. Hefurðu heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
17. Við hvað ætti ég að starfa?
18. Hverju myndirðu vilja breyta í mínu fari?
19. Kæmirðu í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
20. Hvert væri fullkomna ferðalagið okkar?
21. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
22. Veistu að mér þykir einstaklega vænt um þig?
23. Ætlarðu að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Já þá eru þær komnar inn góða skemmtun við að svara.
Hafrún Ásta forvitna.

eitthvað nýtt að frétta!?

Nei auðvitað á ég ekki ennþá afmæli, Hafsteinn er laus við óboðnu gestina (njálginn) og vetrarfríið er búið. Hafsteinn kemst því í skólann á mánudaginn og verður því feginn. Enda búinn að vera fastur heima í viku ja næstum hann fékk að fara út í gær og fyrradag. Í dag var farið að kaupa eitthvað fyrir afmælispeninginn og skipta gjöfum sem voru tvær eins. Hafsteinn kláraði ekki allveg sinn pening á enn smá afgang af peningunum sem hann safnaði sér með því að týna upp dósir á síðasta ættarmóti. Annars er lítið að frétta.

Hafrún Ásta sem hefur ekkert að segja svo mikið er það nú...

02 nóvember 2006

Næsta afmælisbarn

á þessu afmælistímabili er Ég. til hamingju með afmælið ég.... hihi hér eru afmælin 30. september, 30. október, 2. nóvember, 9. desember svo eru pabbi reyndar 29.okt nóg að gera hér í þessari afmælissúpu.

Dagurinn byrjaði vel Hafsteinn Vilbergs skreið upp í og ýtti við mér og söng svo hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún mamma, hún afmæli í dag hún 31 ára ... úps árs... úps til hamingju mamma. Krúttið ...

Hafrún Ásta afmælisstelpa

30 október 2006

Greyið afmælisbarnið

Er með njálg hefur fengið lyf en svo þarf að þrífa allt endalaust. Þetta er ömurlegt... Hann finnur svo til (það er ofsakláði en hann upplifir það sem sársauka.

Hafrún Ásta sem er svo vanmáttug yfir að geta ekki lagað þetta strax.

Fyrsta afmælisgjöfin...

Dottin í hús hún Erna vinkona mín kom mér heldur betur á óvart og sendi mér pakka. Hún er svo mikið krútt. Hún sendi mér kross saumsbók sem heitir "Holiday Memories in Cross Stitch and Needlepoint" eftir Chris Timms



Þetta er krúttleg bók og elsku Erna mín *Knús og Kossar* frá mér þú ert krútt.

Hafrún Ásta sem á bráðum afmæli en í dag á Hafsteinn Vilbergs afmæli og hann er sko sex ára töffari. til hamingju sætasturinn minn.

29 október 2006

Sannur baráttukraftur

býr í vinkonu minni henni Ástu. Hún er ótrúlega jákvæð á þessum erfiðu tímu. Hvaða erfiðu tímum?
Í sumar greindist Ásta með ristilkrabba og hann var fjarlægður og þetta tók mikið á hana þar sem hún lenti í lífshættu og þurfti að fara beint í aðra aðgerð. Nú síðan tók eftir lyfjameðferðin við og átti að vera í 6 mánuði. Svo var hún stöðvuð og hún send í athugun aftur og þá fundust 10 meinvörp í lifrinni. Það var athugað hvort hægt væri að gera eitthvað í því frysta/hita/skera en nei þau eru of stór og of mörg. Hún er komin á nýjan lyfjakokteil og mundu flestir verða slappir af því og orkulausir. Þessi stelpa er þriggja barna einstæð móðir sem þarf að eyða mestum tíma sínum á spítölum núna og fá hjálp sem hún þarf að læra að þyggja. Þessi stelpa er ein sú hjartahlýjasta sem ég þekki og góð sál sem hefur þurft að þola alltof mikið yfir ævina enda gæti hún skrifað bók um líf sitt. En hún hefur langt frá því gefist upp þó læknarnir hafi sagt að hún sé fyrst og fremst að kaupa meiri tíma með lyfjunum.
Faðir hennar stofnaði styrktareikning fyrir hana og ég set númerið hér inn. Hvort þið notið það er svo alveg ykkar ákvörðun en munið að vera þakklát fyrir að eiga erfitt með að fara framúr af því að þið "verðið" að fara í vinnuna. Eða eða eitthvað annað sem maður vorkennir sér yfir ... það lagast ekki satt. ?!?!?!

Styrktarsjóður Ástu vinkonu banki 0525-14-102510 kt:090876-5469 meira að segja smáræði hjálpar.

Hafrún Ásta

27 október 2006

Sumarbústaðaferð

með saumaklúbbnum förum í dag klukkan 15 og komum heim á sunnudaginn. Þetta verður geðveikt gaman og við verðum alveg 11-12 þarna og saumum alla helgina, hlægjum okkur máttlausar, skjótumst í pottinn borðum góðan mat og njótum samverunnar.

Hlakka til að sjá ykkur á eftir stelpur...

22 október 2006

Barbapabbi

Já svei mér þá ég fann bók um Barbapabba og keypti hana fyrir strákana. Vonandi koma fleiri út hjá JPV útgáfu. Allavega er búið að endurútgefa nokkrar í Svíþjóð. var að kíkja og fann þetta á youtube Linda (litlaskvís) þetta er eitthvað fyrir þig ...

allavega hlakka til að kaupa fleiri Barbapabba bækur handa strákunum.


You are Barbamama. You spend most of your time alone, developing your subtle talents. No one really knows you.
Take this quiz!


Hafrún Ásta (Barbamamma)

P.S. hehe svo er þetta náttúrlega bara snilld fyrir alla sem hafa spilað Super Mario Bros.

18 október 2006

Þetta er alveg merkilegt!

í hverri viku er allt í einu að koma helgi og svo er allt í einu kominn mánudagur aftur ... Hvað er málið helgarnar klárast á ótrúlega stuttum tíma og það er strax komin ný helgi svo líður vikan bara eins og ekkert sé. Er þetta tákn um að ég sé að eldast ....




NEI NEI ...

Hafrún Ásta unglamb

16 október 2006

spurning um framboð...

Hvernig lýst ykkur á slagorðið mitt









Elect Hafrún Ásta!
QuizGalaxy.com

I did not have sexual relations with that muppet
'What will your campaign slogan be?' at QuizGalaxy.com

15 október 2006

Tvöfalt barnaafmæli

Ég var búin að skrifa langt blogg en gleymdi að kópera það og auðvitað klikkaði að senda það inn og það hvarf *ARG* Svo ég sendi inn minni útgáfu núna.

Í gær var okkar árlega barnaafmæli, við höfum eitt á ári þar sem strákarnir eiga afmæli með mánaða millibili og vina og vandamanna vegna enda óþarfi að draga þetta fólk út tvisvar í sama mánuðinum og strákarnir eru sáttir við þetta sem hentar okkur fínt að gera eitt veisluborð ... Svo þá eru þetta bara 3-4 tímar á ári sem hávaðinn duanr í veislunni og í ár. Já í ár keypti ég knöll og börnin fundu óuppblásin blöðrupakka. Þessu fylgdi auðvitað þónokkur hávaði. En eins og ég sagði þetta er 3-4 tímar á ári. Strákarnir eru alsælir með allt nýja góssið sitt. Þeir fengu svo margt fallegt og litabækur 3 stk hvor, bækur, boli, peysur & sokka og svo helling af dóti auðvitað.

En það sem okkur þykir vænst um er að fá alla okkar yndislegu vini og vandamenn í heimsókn og samgleðjast með okkur. Þó óneitanlega hafi við saknað nokkurar sem sáu sér ekki fært að mæta núna en okkur þykir alveg jafn vænt um það fólk.

En takk öllsömul fyrir komuna í gær þið eruð öll æðisleg.

Hafrún Ásta sem er glöð að eiga svona margar vini og vandamenn sem hana þykir svona vænt um. (þið vitið vel hver þið eruð) *KNÚS* og *KOSSAR* á ykkur öll ...

Meira að segja Nala brosti þreytt eftir daginn.

09 október 2006

Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

Í dag var ég með Hafstein veikan heim (hann hóstaði svo mikið í nótt) og honum finnst allt hóstasaft vont og hálsbrjóstsykur líka. Svo þetta var nú aðallega að passa að hann drykki nóg og hvíldi sig því um leið og hann æsist eða leggst niður þá eykst hóstinn.

Nú jæja svo sæki ég Heiðmar Mána og hann er duglegur í að æsa upp bróðir sinn og öfugt. En það tókst seint og síðar meir að róa þá niður og þá fór Heiðmar Máni að syngja fyrir mig fyrsta lagið sem hann lærði litalagið. En breytingin núna var að hann syngur þetta núna með táknmáli. og kenndi mér það líka þannig. Alveg nei mamma þetta er svona. hihi Hafsteinn fór bara að fíflast því hann vantaði athygli eftir allan daginn ég skil það nú ekki. Svo þegar ég fór að lesa fyrir Heiðmar Mána í kvöld litlu bláu könnuna með litla bláa kettinum sem henti henni í gólfið (vona að ég hafi ekki skemmt endann á bókinni fyrir neinum) þá gerði hann táknin og sagði litla bláa kannann og litlu svarti kötturinn (kisan) á réttum stöðum. Þeir eru svo duglegir þessir strákar mínir.

Svo kom pakki til mín sem var sendur frá USA 8. ágúst í dag ekki seinna vænna var farin að halda að pósturinn æti alla pakka til mín. Ja ég fékk einn í síðustu viku eftir 3 mán ... það var handavinnupakki og þessi líka efni og spes yfirstrikunarpennar.

Hafrún Ásta montna mamma

08 október 2006

Barkabólga

Hafsteinn vaknaði klukkan um 12 á miðnætti í nótt og hágrét með miklum ekki og eins og hann ætti í öndunarerfiðleikum og hóstaði svo mjög þurrum hósta á milli. Hann grét svo sárt og við reyndum að róa hann og ákváðum að fara með hann á læknavaktina og Sigrún var hérna og passaði Heiðmar Mána og við lögðum af stað og hringdum til að tékka hvort mikið væri að gera og hún sagði okkur bara að þetta væri barnahæsi og að þetta mundi lagast í gufu eða með að fara svona út með hann. Nú en við fórum samt niður á Barnaspítala þar sem hann var skoðaður í bak og fyrir og okkur sagt að hann væri með barkabólgu og hann fékk steratöflur leystar upp í vatni og svo svona úðapúst sem hann þurfti að nota í 30 mínútur. Svo þurftum við að bíða í svona 30 míní viðbót og alls vorum við 2 tíma að þessu en hann er hress í dag pínu þreyttur en hress.

Hafrún Ásta

07 október 2006

Dekurkvöld

í góðum félagsskap.

Já ég fór og hitti Karen Ülrich upp í Baðhúsi í gærkvöldi og við fengum handklæði og náttsloppa (mér hefur alltaf fundist ég hálf bjánaleg í náttslopp en í gær sá ég að ég full bjóanaleg í náttslopp) og skelltum okkur í pottinn og svo í litun og plokkun, andlitsbað, maska og andlits- & axlarnudd. Svo fórum við á Ruby Tuesday's og borðuðum og héldum áfram að kjafta fram eftir. Vá hvað þetta var æðislegt og Karen mín takk fyrir æðislegt kvöld þetta þurfum við að endurtaka seinna með eða án dekursins. Það er alltaf gaman að kjafta svona fram eftir.



jamm beauty is pain haldiði að ég sé bara svona náttúrulega sæt ;o)

Svo í morgun fórum við öll familían út í Egilshöll Hafsteinn Vilbergs í fimleika, Siggi að horfa á, Heiðmar Máni fór í pössunina og ég í leikfimi. Svo fórum við og keyptum okkar ís og fórum svo heim þar sem strákarnir tóku til í herbergjunum sínum og fengu svo poppa og kók og að horfa á vídeó ... Alltaf eitthvað gaman á eftir.

Hafrún Ásta kjánprik og dekurrófa.