16 desember 2005

Þessir jólasveinar

Hafsteinn Vilbergs kom hlaupandi inn til okkar klukkan 6:30 (ok já ég fór ekki í leikfimi í morgun sofnaði svo seint) og tilkynnti okkur það að pottaskefill hefði skilið eftir pott í glugganum hann hefði sennilega borðað úr honum og svo skilið hann eftir. Hann kom ekki með innihald skósins nei POTTINN hehe. Þetta er svo ekta gleði yfir því að jólasveinninn skul heimsækja hann á hverju kvöldi að það er yndislegt. Heiðmari Mána er nú nokk sama í raun en þetta er þannig að þeir hafa gleymt og ég líka að opna súkkulaðidagatalið í tvo daga.

Fór í saumaklúbbinn í gær og saumaði smá svo svakalega gaman að sjá stelpurnar aðeins og knúsast í dúllunum þeim Sóleyju Birtu og Karítas Árnýju sem leyfðu mér alveg að dullast með þær eru báðar í kringum 3ja mánaða hvílíkar rúsínur.

Sóley Birta til vinstri í bleikum buxum og Karítas Árný til hægri í hvítum buxum.







Hafrún Ásta sem er að fara á jólaball með strákana í vinnunni eftir vinnu en þá verða þeir búnir á einu jólaballi í leikskólanum í dag.

Sá fimmti Pottaskefill,
var skrítið kuldastrá.
-Þegar börnin fengu skófir
hann barði dyrnar á.

Þau ruku’upp, til að gá að
hvort gestur væri á ferð.
Þá flýtti’ ann sér að pottinum
og fékk sér góðan verð.

10 ummæli:

Karen sagði...

Hahahahaha :)

Karen sagði...

Þvílíkar skottar þessar litlu, skil þig vel að skemmta þér við að knúast með svona lillur. Fín æfing ætlið þið Siggi ekki að koma næst með prinsessu???

Hafrún Ásta sagði...

væri ekki galið

Nafnlaus sagði...

Ohhhh jú ég mæli sko alveg með einu svsona krútti í viðbót!! :D

Nafnlaus sagði...

Nohh nohh bara komin eggjahljóð í mína hehehehe :Þ

Hafrún Ásta sagði...

segi það nú ekki en væri alveg til í eitt enn.

Sonja sagði...

Gerir lítið til þó þeir gleymi að opna súkkulaðidagatalið fyrst nammið er hvort eð er geymt til laugardaga!!! ;)

Hafrún Ásta sagði...

ekki úr dagatalinu en hitt ;o) er nú ekki alveg að borða úr dagatalinu og bursta vel á eftir sakaði mig ekki svo varla þá. svona fyrir jólin.

Sonja sagði...

ha!

Hafrún Ásta sagði...

súkkulaðið úr dagatalinu er ekki geymt til laugardaga bara þetta skipti sem það var sett í skóinn hehe.