28 febrúar 2006

Hafsteinn er ekki glaður

Hann kom hérna fram núna klukkan 22:45 og sagði mér er illt í maganum. Okkur fannst hann í heitari kantinum og mældum hann 38,8 hann var ekki glaður með þær fréttir. Tilkynnti okkur svo að hann færi nú samt í leikskólann.

Heiðmar Máni kláraði Latarbæjar orkuátakið með 5960 stigum á netinu og
Hafsteinn Vilbergs kláraði Latarbæjar orkuátakið með 5900 stigum á netinu
Hvílíkt duglegir og þeir fá sko óskir sínar uppfylltar sem eru ferð á KFC í Mosó því þar er rennibraut og ferð í Húsdýragarðinn en fyrst þarf Hafsteinn að jafna sig.

Hafrún Ásta sem er að hugsa um að fara sem kengúra í vinnuna á morgun hehe.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með duglega drengi. Mín eru ennþá að líma í bækurnar. Höfum ekki límt alla daga svo að það er smá tími eftir hjá þeim.

kv Lena

Hafrún Ásta sagði...

já þeim finnst þetta stuð spurning hvort það verður safnað tiltektar miðum nú þegar bókin er búin hehe. Þeir fengu meira í bókina en tildæmis ekki hægt að setja bæði lýsi og vítamín á netinu
Heiðmar Máni tekur vítamín og lýsi
til dæmis.

Nafnlaus sagði...

Ég VIL fá að sjá mynd af þér í kengúrubúningi :)!!!!!!

Hafrún Ásta sagði...

hehe ég gerði það fór sem kengúra í vinnuna. En tók enga mynd.