30 ágúst 2006

fleiri myndir


Næsti Magni eða hvað? híhí Verður kannski bara frægur sem Heiðmar Máni...

og svo letidýrið -->



Hætt að henda inn myndum í bili.
Hafrún Ásta

Ýmislegt

Í fyrsta lagi hvað er málið með þetta að gefa Árna Johnsen uppreisn æru svo hann komist aftur á þing. Af því að hann stóð sig svo vel síðast. EÐA??? Svo sagði hann aðspurður hvort hann hefði ýtt á eftir umsókninni sinni að hann hefði aldrei nýtt sér neitt svoleiðis fyrir sjálfan sig umm bíddu afhverju fór hann á Kvíabryggju að æfa sig í höggmyndalist úr fjörusteinum. ... Finnst þetta undarlegt mál og í fjarveru forsetans ...

Jæja að öðru t.d. Rockstar Supernova og kosningunni sem gekk ekkert of vel og þar sem ég skreið inn í rúm um kl. 3:20 alveg búin á því frá því að vera vakandi frá kl.7 og svo vakna kl. 7 aftur til að fara að vinna. Ja ég var frekar þreytt eftir hádegi en það er alltaf nóg að gera.

Svo eru það myndirar af stóra skólastráknum og litlu svefnpurrkunni minni
Hafsteinn skólastrákur


Algjör snúður



Hafrún - set bráðum inn fleiri myndir á meðan ég glápi aftur á rockstar.

28 ágúst 2006

Aldeilis orðið flott...

...hjá honum pabba þetta var sett upp á föstudaginn.


Hafrún Ásta kveður í bili
en set bráðum myndir af Hafsteini skólastrák sem teknar voru fyrsta skóladaginn

26 ágúst 2006

The Mighty ME

eða var það mini me hehe allavega ég var að veiða geitung í glas tvisvar fékk hjálp frá Nölu (kettinum) í fyrra skiptið (mjög hjálpleg EÐA ÞANNIG pirraði kvikindið bara) og henti henni út Svo tvö afrek í dag ... þar sem mér er meinilla við þessi kvikindi sem og köngulær.

Hafrún Ásta the hero ;o)

16 ágúst 2006

Rockstar Supernova

Ég er nú alveg dottin inn í þessa þætti enda er Magni að standa sig frábærlega. Ég held að Dilana geti unnið og Lukas þó ég fíli hann ekki ég bara get ekki horft á hann á sviði það er eins og hann sé með 2 staurfætur (hehe eins og stekkjastaur) og svo er eins og hann sé að fá flogaveikiskast reglulega. Hann getur vel sungið oft en ... það er ekki nóg að surgast í gegnum raddböndin og hoppa um eins og hauslaus hæna. Storm finnst mér flott, hún er með alveg svakalega flott augu og getur vel sungið þó frammistaða hennar í gær hafi ekki verið nógu góð. Ryan og Toby eru alveg ágætir en ekkert svona geggjaðir þó þeir hafi staðið sig vel í gær. Patrice er að missa flugið og ég er viss um að hún og Zayra verði meðal 3 neðstu í kvöld.

Zayra þarf sitt eigið pláss hún flutti lagið sitt flott en hún á mjög erfitt emð að læra lög annarra og að útsetja þau fyrir sig þannig að flott sé. Svo er hún bara enginn rokkari í svona rokk-keppni. Svo eru outfittin alveg kapitúli útaf fyrir sig. í gull gallanum með svartan hatt og í stripp skóm hún var eins og kvenkyns Mr. Peanuts.

Annars er ég oft hissa á lagavali hvað hefur "I will survive" að gera með rokk en kannski eru þeir að sjá hvað keppendur geta gert úr lögunum. Ef litið er til árangurs Marty Casey með "Baby, hit me one more time með Britney Spears" hehe hann gerði það áhugavert.

Annað sem er að gerast ja ekki mikið Hafsteinn byrjar í skólan í næstu viku á fimmtudeginum en fyrst er viðtal á þriðjudeginum eða miðvikudeginum. Ég er byrjuð í sjúkraþjálfun út af öxlinni sem læknirinn segir að sé orsök árekstursins fyrir tæpu ári. En vonanid nær hann því í samt lag einhver tognun. Gerir prjónaskapinn mjög erfiðann ætli ég verði ekki bara að sauma pínu (og ég sem er að prjóna peysu á Hafstein fyrir skólann).Svo var ég skráði í blaklið í vinnunni og ég er víst ekki sú sterkasta í HÁVÖRNINNI hehe! en ég æfði nú einu sinni blak og stóð mig vel þá held ég bara. minnir mig á að redda búningum fyrir þetta lið eins og ég átti að gera. Og já ég var skráð í það án þess að gera það sjálf... hehe.

Hafrún Ásta sem fylgist spennt Rockstar: Supernova með á þriðjudögum og miðvikudögum og mun auðvitað halda því áfram.

04 ágúst 2006

Tilgangslaus blogg

já því þið hafið svo gamana f þeim ætla ég að segja ykkur frá því þegar ég fékk mér tyggjó í morgun. Jamm ég teygi mig í pakkann Extra winterfresh og tek plötuna úr pakkanum (já það fæst í plötum núna) og tek álpappírinn utan af hendi svo öðrum hlutanum í ruslið. Rétt í því sem ég er að fara að setja tyggjóið upp í mig, geri ég mér skyndilega grein fyrir því að ég henti tyggjóinu í ruslið og hélt á pappírnum hehe algjör bjáni...

Langaði ykkur nokkuð að lesa eitthvað merkilegt. hehe
Hafrún Ásta

03 ágúst 2006

kominn tími á blogg

Æji hef verið svo blogglöt undanfarið og það er nú ekki neitt merkilegt á leiðinni núna en þetta er nú áhugavert stjörnuspáin mín úr Mogganum.

Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.) _
Þögn er ekki bara það að tala ekki eða
skortur á hávaða, hún er viðhorf sálarinnar.
Ef þú ræktar þína innri þögn
blasir lífsleiðin kyrrlát og upplýst við,
eins og sveitavegur á fullu tungli.

Svo er þessi góð ég er einmitt með svona 5 ára stílista heima hehe...


Jæja hef ekki meira að segja jú en ég bara nenni ekki að pikka það inn í vinnunni NO TIME en svo þegar heim kemur nenni ég því ekki heldur LETI.

over & out Hafrún Ásta

16 júlí 2006

Aktív í fríinu.

Já svei mér þá. Gamalt klár fékk upplyftingu smá viðbót og fór í ramma.
Svo eru hérna myndir af litlu plássfreku hjálparhellunni hehe.



Svo er ég búin að vera svo aktív í saumaskapnum undanfarið að ég bjó til afmæliskort fyrir afmæli sem við fórum í í dag nafn stelpunar byrjar á Á


Hafrún Ásta alltaf á fullu.

09 júlí 2006

Myndir og lokaleikir HM

Myndir af kisunni og puntviskustykkinu sem ég kláraði upp í bústað. Já hún er svaka skemmtileg þessi mynd.
Hér er þá Nala

og svo önnur Nölu og strákunum


og svo ein af puntuviskustykkinu mínu úr bókinni góðu sem keypt var í London í Mars.


Svo er það HM ... í gær veðjaði ég við sigga að ef Þýskalandi ynni Portúgal fengi ég saumavél og ég vann en ég fæ hana víst í jólagjöf. Svo unnu Ítalir í dag en ég hélt með Frakklandi. en þrátt fyrir að fylgjast ekki mikið með fótbolta þá fannst mér þetta atvik með Zidane þegar hann skallaði Materazzi í brjóstið ótrúlegt því svona gera menn ekki og alls ekki í sínum síðasta leik.

En já ekki meira um það ...
Hafrún Ásta sem hendir þó stundum inn myndum.

07 júlí 2006

Erum komin heim og ...

Kisan líka hún Nala sem er grá og hvít og voða skemmtileg og kelin. Er óðum að venjast okkur Sigga og svo hefur hún tíma til að venjast strákunum. Vill ólm kela og skoða sig um. Er nú pínu grallari líka en svaka sæt.

Annars erum við bara að horfa á Rockstar : Supernova núna og vonum að Magni detti ekki út vona að Phil detti út eins og staðan er núna.

Meira seinna
Hafrún Ásta sem er fegin að vera komin heim.

30 júní 2006

bless í viku

við erum að fara á ættarmót svo beint upp í bústað svo komum við heim og náum í nýja fjölskyldumeðliminn. Kisu sem heitir Nala.

Hafrún Ásta ferðalangur

28 júní 2006

Loksins loksins

drattast maður til að setja nýjar myndir inn á síður strákanna.

Hafsteinn Vilbergs og Heiðmar Máni

Snúllarnir mínir og margt annað ef þið viljið leyniorðið þá bara sendiði línu. Ég læsti síðunum nefnilega

Hafrún Ásta

21 júní 2006

Alltaf nóg að gera

Já í þessari familíu er alltaf nóg um að vera. Þriðju helgina í röð fórum við úr bænum og nú norður. Sigrún var að útskrifast. Algjör pæja og óskum við henni til hamingju aftur. Hafsteinn átti viðburðaríkan 17. júní ... Hann fékk sér sundsprett í öllum fötunum og skónum líka, þegar hann datt ofan í lítinn gosbrunn í Lystigarðinum á Akureyri. Þetta gerðist auðvitað þegar við vorum ekki á okkar bíl og því ekki með leikskólatöskuna í bílnum. Svo hann fór út úr garðinum að bílnum sem við vorum á með Ingibjörgu og Natani. Þar var hann strípaður eftir að hafa GÓLAÐ alla leiðina þangað að það mætti enginn sjá hann og að þetta væri ekkert fyndið. Ég barðist við að hlægja ekki. En jú þarna er hann strípaður og fer í kvennmannssokkabuxur af Ingibjörgu og flíspeysu af Natani. Svona var hann skólaus þar til ég var búin að keyra á bílnum, á meðan hann beið í garðinum, að ná í föt í bílinn okkar. Ég sé mest eftir að hafa eki tekið mynd af honum rennblautum á símann. Svo fórum við að fara í sparifötin og í útskriftarveisluna og þar var nú svona líka svaka stuð. Fullt af litlu frænkum (undir 1 árs) alla rhver annarri sætari.
Úr veislunni var haldið í pössun því hjá MA er matur og ball með nánustu um kvöldið. Hafsteinn og Heiðmar Máni lögðu því leið sína til Gunna og Lindu sem eiga hvorki meira né minna en 3 stráka (Daða Örn, Jóhann Inga og Svavar Mána) Það var nú svona líka gaman þar víst að þeir voru ekert á því að koma heim daginn eftir. Svo vonandi hittum við þau nú sem oftast (hér og þar).
Nú svo komum við heim á sunnudeginum. Þá kom í ljós að Gísli var allur hann hafði nógan mat og nóg vatn en virtist ekki hafa jafnað sig á að missa Úa á sýnum tíma hann var alltaf frekar leiður að sjá eftir að hann dó. Hér var sem sagt dálítil sorg í gangi.

En það er verið að aathuga hvað við gerum næst það er hvort við fáum okkur annað dýr og þá hvaða dýr???!!! Það mun bara allt koma í ljós.

Hafrún Ásta sem ætlar að vera í bænum næstu helgi.

13 júní 2006

Roger Waters

Þessir tónleikar voru alveg hreint magnaðir og Siggi er alveg í skýjunum ennþá ... flott sýning og geggjað hljóðkerfi.

Tók helling af myndum og aldrei að vita nema ég hendi svo inn nokkrum.

Hafrún Ásta sem er fegin að geta labbað út í Egilshöll og heim aftur eftir tónleika.

07 júní 2006

Óvænt ánægja

Og svona líka frábær RISA KNÚS til ykkar Nonni og Ingibjörg þetta var rausnarleg og æðisleg gjöf þið eruð Frábær.

Við fengum óvænt miða á Bubba og það frítt og aukamiðarnir tveir fóru til Ernu og Jóa sem nutu sín í botn ekki síður en við tvö. Jón Fannar og Anna sem við buðum fyrst með okkur sögðust ekki komast (eða þau föttuðu ekki að miðarnir voru FRÍIR). En Erna mín og Jóhann Kári nutu góðs af því
Ég mun setja inn fleiri myndir seinna. En vá hvað það er magnað að þessi maður sem getur hoppað um allt svið í 3 tíma sé að verða 50 ára. Hann tók öll bestu lögin sín og við sungum mikið með. Hann tók Svartur afgan, Blindsker, Rómeo og Júlíu, Móðir, og hann endaði á Fjöllin hafa vakað og lét ekki klappa sig upp lengi ... Gentleman sko. Ég keypti bol handa Sigríði Ósk frá tónleikunum og annann handa mér og svo einn geisladisk það var þá orðið um andvirði miðans.

Ég gæti talað mun meira um þessa tónleika og geri það kannski en samantekt því ég er í vinnunni en vildi endilega skrifa þetta niðru samt.

ÞAÐ VAR GEGGJAÐ GAMAN..............!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hafrún Ásta sem skilur vel afhverju hún hlustaði svona mikið á Bubba þegar hún var tólf ára og alla tíð síðan.

01 júní 2006

Gamlar bíómyndir

Ég hef oft talið að gamlar uppáhaldsmyndir eigi að vera það ekki eigi að horfa á þær aftur. Þetta á við um myndina "Neverending Story" ég sá hana 3var í bíó sem barn stóðst engan vegin samanburð þegar ég sá hana aftur 18 ára

En í gær horfðum við Siggi á "Ace Ventura - Pet detective" og ég hló alveg helling ... Næsta mynd hjá okkur saman er "Ace Ventura - When Nature Calls" minnir að hún hafi verið fyndnari.



Svo áðan horfði ég á "The color purple" og þessi mynd stenst tímans tönn og ég grét enn á vissum hlutum myndarinnar og hún hefur enn áhrif á mann.



Svo það er greinilegt að sumar myndir eru enn fyndnar og vel gerðar og standans það að maður horfi á þær aftur eftir langann tíma.

Hafrún kvikmyndaglápari

29 maí 2006

busy busy

like a bee. Já ótrúlegt hvað það er alltaf mikið að gera hjá manni þessi helgi var busy... föstudagur út að borða og svo á tónleika. Laugardagur skutla barnapíunni heim, kjósa, fara í afmæli, fara og grilla með gamla settinu (mömmu og pabba). Sunnudagur elda 2 lambalæri ofan í 11 manns og fá þau öll í heimsókn í hádeginu hehe (bara gaman spiluðum gaur og alles), fá svo óvænt gesti í kaffi, fara og kaupa hjól handa Hafsteini (hann nær ekki alveg nógu vel niður algjört krútt samt því það eru enginn hjálparadekk) hitt er orðið of lítið. en næsta fyrir ofan er aðeins of stórt held ég kannski það hafi verið eitthvað millistig. Svo klippa strákana og svo vildi Heiðmar Máni ekki sofna fyrr en að verða 23 en var samt góður inn í rúmi en var sko þreyttur í morgun.

Hafrún Ásta sem enn og aftur skrópar í ræktina sökum þreytu *lesist LETI"

26 maí 2006

í dag...

Eigum við Siggi 5 ára brúðkaupsafmæli. Jey og það sem meira er að núna í júní höfum við þolað hvort annað í hvorki meira né minna en 9 ár.

Annars er nú ekki erfitt að þola hann Sigga hann er svo ljúfur og sætur.

Kveðja frú Hafrún Ásta

23 maí 2006

Glöggir lesendur

muna kannski eftir því þegar ég talaði um að hafa sent umferðastofu tölvupóst um skilti sem ég fékk svona hugdettu um. Nú þeir hafa ekki enn svarað mér. En þeir eru að setja upp þrengingu í Gullengið til að hægja á umferðinni svo sennilega taka þeir ábendingum og vinna í málunum án þess að hafa meiri áhyggjur af því. Best að segja ekki frá því í hverfinu að ábendingin hafi komið frá mér.

Hafrún Ásta ábendari... (er það orð einu sinni til?)

21 maí 2006

Jibbý Finnland vann

Og ég er alsæl með það. Finnst þeir æði LORDI Já það var kominn tími til að hrista aðeins upp í Eurovision. Og Íslendingar brutu blað í sögu Júró aldrei fyrr hefur verið úað á neinn áður hann byrjar að syngja í júró. Svo það er þó eitthvað ... Ég er viss um að þeir munu enn muna eftir hanni á næsta ári...

Hafrún Ásta sem fílar Lordi...