16 júlí 2006

Aktív í fríinu.

Já svei mér þá. Gamalt klár fékk upplyftingu smá viðbót og fór í ramma.
Svo eru hérna myndir af litlu plássfreku hjálparhellunni hehe.



Svo er ég búin að vera svo aktív í saumaskapnum undanfarið að ég bjó til afmæliskort fyrir afmæli sem við fórum í í dag nafn stelpunar byrjar á Á


Hafrún Ásta alltaf á fullu.

17 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef þú ert bara ekki sú allra duglegasta ;)

Hafrún Ásta sagði...

hehe nei bara létt geggjuð... Hey hvað segirðu m að hittast fljótlega þú þarna....

Sonja sagði...



Loksins saumamyndir :o

Hvað varstu lengi að gera stafinn?

Nafnlaus sagði...

Dugleg stelpa....
Kortið er ekkert smá flott.
Og "fæðingarmyndin" líka.
Kisan er náttlega bara dúlla og ég hlakka til að sjá meira hjá þér.

Hafrún Ásta sagði...

Sonja ég byrjaði klukkan 12:30 að nóttu til saumaði í svona 30 mín og kláraði svo á svona 2 tímum daginn eftir mjög fljótlegur. En þeir eru svaka sætir.

Rósa já maður setur stundum inn myndir.

Nafnlaus sagði...

Ekki spurning elsku krútt, dauðlangar að hitta þig!!verðum í bandi í vikunni, hver veit nema næsta helgi sé göldrótt ;)

Hafrún Ásta sagði...

einmitt það væri gaman

Sonja sagði...

Frábært! Ég á nefnilega þetta blað og langar til að gera þessar myndir. Gott að hafa tímaramma :)

Hafrún Ásta sagði...

Erna ég er að fara í útilegu um helgina er einhver annar tíma sem hentar?

Nafnlaus sagði...

Snúlla mín, er á leið í sumarfrí í næstu viku...hvernig væri hittingur eitthvert kvöldið?, nei ég fer einum lengra og skora á þig í keilu í næstu viku eitthvert kvöldið sem hentar! Do you have the balls?!?!?!?!

Hafrún Ásta sagði...

já Erna ég á von á að þú sért anonymous svo ég tek þeirri áskorun eigum við að segja á fimmtudagskvöldið?

Nafnlaus sagði...

Fyrir alla þá sem eru að fylgjast með þa´verður alheimskeppnin í keilu á mánudagskvöldið og efast ég ekki um að Hafrún Ásta noti þenann miðil til að drekkja sorgum sínum efir að ég skúra með henni gólfið ;) muahahahahahah

Nafnlaus sagði...

Fyrirgefðu Hafrún, hér fyrir ofan skrifaði illi eineggjatvíburinn minn en ekki ég. Ég mun að sjálfsögðu nálgast þennan merkisviðburð með ró í hjarta og ást gagnvart öllum dýrum jarðarinnar :)

Hafrún Ásta sagði...

híhí jamm skan ég mun þá drekkja sorgum mínum hér... eða monta mig gífurlega...

Freyja sagði...

ég vona að Nala sé búin að jafna sig eftir erfiða heimsókn til dýralæknisins. Það gengur bara betur næst. Kær kveðja frá dýralækninum.

Hafrún Ásta sagði...

hehe já já hún varð mjög fljótt sjálfri sér lík. Var víst mjög róleg svona út föstudaginn en svo á laugardaginn þá var hún orðin hún sjálf.

Hafrún Ásta sagði...

Og já ég fer að blogga en ekki í dag brjálað að gera í vinnunni og ég of þreytt sökum Rockstar