18 maí 2006

eldist ég nokkuð þegar strákarnir stækka

Allavega var útskrift í leikskólanum í gær hjá Hafsteini þó hann sé ekki hættur alveg en hann færist á Ævintýraengi þar sem þau fara í göngutúra og upplifa alls kyns ævintýri í sumar áður en skólinn byrjar.

Og Heiðmar Máni pissaði í koppinn í morgun alveg helling svaka duglegur.

Ég gæti skrifað helling um útskriftina en kannski set ég það bara á síðurnar hjá strákunum og myndir líka.

Hafsteinn Vilbergs og Alexander Leó útskriftaðir strákar og eðlilegir strákar þurfa lík að gretta sig pínu í myndatökunum
Og auðvitað var Heiðmar Máni líka spariklæddur

Og við Siggi líka en ekki hvað, vorum samt ekki í myndatökum samt nema hinu megin við myndavélarnar.

Hafrún Ásta síunga

2 ummæli:

Sonja sagði...

Til hamingju með strákana. Þetta er stór áfangi hjá þeim báðum.

Hafrún Ásta sagði...

Takk já þeir virðast stækka svo hratt.